Vinstri Græn: Það er í lagi að hafna frumvarpi um Icesave. Það eru nú þegar lög í gildi.

Það þarf nauðsynlega að árétta við þingmenn Vinstri Grænna að það eru nú þegar lög í gildi varðandi fyrirvara vegna Icesave samkomulags.

Verði nýju frumvarpi vegna Icesave samkomulagsins hafnað þýðir það einfaldlega að lögin sem sett voru í haust gilda áfram.

Skilaboðin til Breta, Hollendinga, ESB og AGS verða  að Íslendingar séu tilbúnir til þess að ábyrgjast greiðslur samkvæmt Icesave samkomulagi innan þess lagaramma sem Alþingi setti í haust.

Það þýðir ekki að Íslendingar væru að neita að borga eða neita að standa við samkomulagið heldur einunigs að það verði gert innan ramma laga frá Alþingi.

Ég hvet þingmenn Vinstri Grænna til þess að láta ekki blekkjast enn einu sinni af hótunum Samfylkingarinnar og formanns ykkar um heimsendi. Það er búið að hóta heimsendi nokkrum sinnum án þess að af honum hafi orðið.

Hafnið nýju frumvarpi og segjum nóg komið af kúgunum kvartettsins, Hollendinga, Breta, ESB og AGS.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Þetta er nefnilega kjarni málsins.

Lög um ríkisábyrgð voru samþykkt í sumar. Frumvarpið sem nú er til afgreiðslu gengur út á það eitt að veikja varnir Íslands til að þóknast Gordon Brown, formanni (bresku) Samfylkingarinnar.

Haraldur Hansson, 14.12.2009 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband