Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2007
Bara á móti ...
6.4.2007 | 11:22
Ég hef veriđ ađ lesa bloggin hans Ómars Ragnarsssonar sem og margra annarra grćnna og vinstra megin í pólitíkinni og ég get bara ekki varist ţeirri hugsun sem í sífellu dettur inn í höfuđiđ á mér; Er allt ţetta fólk bara á móti? Er allt ţetta fólk bara ađ hugsa um ađ koma í veg fyrir eitthvađ?
Ţađ er eins og ţađ sé eini fókusinn. Ekki lausnir og hugmyndir um hvernig á ađ fćra okkur fram á viđ heldur bara ađ koma í veg fyrir hitt og ţetta. Í veg fyrir sömu stjórn, í veg fyrir virkjun orkulinda, í veg fyrir álver, og svo fram vegis. Jú .. ég heyri ađ vísu notuđ orđin hátćkni, auka menntun, styđja viđ ţetta og hitt jákvćtt en ţađ heyrist hjá öllum, líka ţeim sem eru hćgra megin og vilja virkja kraft ţjóđarinnar og landsins. Og ţegar ég sé eitthvađ jákvćtt ţá er ţađ yfirleitt í samhengi viđ "í stađinn fyrir".
Sem sagt .. VG, Íslandshreyfingin, Samfylkingin og jafnvel Frjálslyndir staglast á "koma í veg fyrir", "má ekki gerast", "í stađinn fyrir", "hindra", "hefta" og fleira.
Ekki viljum viđ ţetta svona fólk viđ stjórnvölinn? Eđa hvađ?
Svo ég víki nú ađ öđru. Jú jú, sagt er ađ ég sé hćgra megin og ekki hrifinn af feminisma og svo framvegis og jú ég hef látiđ út úr mér ađ ég vćri alveg feiknalega á móti Hjallastefnunni en ég sá Margréti Pálu í Silfri Egils og mér fannst feiknamikiđ til hennar koma ... ég vildi ađ hún vćri í frambođi frekar en margir ađrir sem fram koma fyrir hönd stjórnmálaaflanna. Ekki ađ ég myndi endilega kjósa hana enda kýs mađur flokka í nćstu kosningum.
Já og svo voru ţađ FORMA tónleikarnir. Uss mađur. Björk. Algjör brandari. Nýju fötin keisarans er ţađ sem mér dettur í hug. Ţvílíkt rugl. Tónleikarnir sökkuđu feitt fyrir utan einn ţeirr sem kom fram, Pétur Ben. Ótrúlega góđur og hlýtur ađ eiga framtíđina fyrir sér.
Kveđja,
Jón Árni
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)