Skulu játningar ávallt standa?

 Nú hafa Icesave-liðar hrakist úr einu víginu í annað þar til það eitt virðist eftir að fyrri stjórnvöld hafi skuldbundið íslendinga með því að játast undir ábyrgð vegna Icesave.  Allt snýst núna um að standa við orð og gerðir fyrri stjórnvalda.  Eins skringilegt og það virðist er síðasta haldreipi SJS og félaga, orð og játningar Sjálfstæðis og Samfylkingar liða við völd.

 Nú er það gott og gilt að siðferðilega ber manni að standa við eigin orð.   En segjum að ég væri nú í þessari líka svakalegu veislu þar sem allir skemmtu sér konunglega og í góðu stuði, svona allavega á yfirborðinu.   Segjum svo að vegna gerða minna í veislunni, mjög líklega löglegra gjörða, verði nokkrir einstaklingar fyrir verulegum fjárhagslegum skaða og veislan öll leysist upp í mikilli ringulreið.  Í kjölfarið og undir miklu álagi þar sem allir tala hátt og mikið og fæstir vita samt hvað raunverulega gerðist, játast ég undir þá ábyrgð að ég hafi valdið skaðanum og um leið að ég muni bæta skaðann.   

 Þegar um hægist og róast verður mér ljóst að mögulega hafi ég ekkert ólöglegt hafst að og þótt skaði hafi orðið af þá virðist sem ábyrgðin liggi víðar en hjá mér og meðal annars hjá öllum þeim sem þátt tóku í veislunni, sem og þeim sem gáfu leyfi fyrir veislunni og því sem þar fór fram.  Lögfróðir menn margir segja mér að ekki sé endilega ljóst að mér beri skylda til þess að bæta skaðann enda geti ég það jafnvel ekki.  Eðlilegast sé fyrir alla aðila að leitað sé til dómstóla til þess að fá úr því skorið hvernig mál raunverulega standi.

 Nú er spurningin auðvitað þessi:  Ber mér að standa við fyrri játningu eða er mér siðferðilega stætt á þvi að leita réttar míns?  Svari nú hver fyrir sig.

 Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að sú vestræna menning sem við öllum búum við ætlist til þess að farið sé með vafamál sem þessi fyrir dómstóla til þess einfaldlega að fá úr því skorið hvar ábyrgin liggi og hvernig mögulega skuli refsa þeim ábyrgu og hvernig skuli bæta skaðann. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Samfylkingin virðist ekki hafa verið viðstödd í ríkisstjórn, þegar yfirlýsing var gefin út að leitast yrði að semja um Icesave. Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn virðist bera þá ábyrgð. Öllum sem með fylgdust var hins vegar ljóst að þrýstingurinn frá Samfylkingunni var mikill til að þóknast ESB ríkjunum. Minntu helst á smástelpur sem stunda kynlíf sem aðgöngumiða til þess að fá að komast í eftirsótt partý.

Nú þegar verið er að fjalla um Icesavesamniginn þá eru allir Samfylkingarfélagar sammála um að samþykkja hann, því hann sé svo ESB legur, svo alþjóðlegur. Þar með sýnum við að við viljum vera í samfélagi þjóðanna. Hins vegar fá VG allar skammirnar, því enginn úr forystuliði Samfylkingarinnar tjáir sig um samninginn. Þeir eru ekki einu sinni á vaktinni.

Sigurður Þorsteinsson, 5.7.2009 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband